
Indland í febrúar
Delhi - Agra - Jaipur - Góa
Að koma til Indlands í fyrsta skipti er eins og að verða ástfangin í fyrsta skipti - það gleymist aldrei!Indland – landið þar sem kýrin er heilagt dýr! Ríkið sem fljótlega verður fjölmennasta land heims, er eins og heil heimsálfa með öll sín þjóðarbrot, tungumál og trúarbrögð. Hér skiptast á fátækt og ríkidæmi, austræn og bresk áhrif, hindúismi og múslímatrú...Við byrjum ferðina á „Gullna þríhyrningnum" - dyrunum að hinu ævintýralega og dularfulla Indlandi, einu elsta menningarríki heims. Litadýrð, gestrisni og hlýtt viðmót Indverja er nokkuð sem lætur engan ósnortin en heimspeki og lífsviðhorf þeirra er í mikilli andstöðu við streitta Vesturlandabúa. Við kynnumst höfuðborginni Delhi - gamla og nýja hlutanum, bleiku hallarborginni Jaipur og Agra, þar sem sjálft „hof ástarinnar" Taj Mahal bíður okkar í allri sinni dýrð. Í lok ferðar halda áfram frábærar skoðunarferðir í bland við afslöppun og hvíld við eina af bestu baðströndum heims í suðurhluta Indlands - Góa.Slíkt verður gott þegar hausta er farið verulega á Íslandi.
![]() | ![]() | ![]() |
---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() |
Dagur 1 Keflavík – Nýja Delhi
Eftir hádegi, flug frá KEF - Leifsstöð og síðar flogið áfram til Nýju Delhi höfuðborgar Indlands.
Dagur 2 Nýja Delhi
Lent í Delhi fyrir hádegi að staðartíma (sem er miðað við ísl. tíma UTC+05:30). Móttaka á Indira Gandhi alþjóðaflugvellinum við Delhi, innlendur enskumælandi fararstjóri tekur á móti okkur, haldið á hótel og helstu kennileitum borgarinnar kynnst. Borgin hefur verið byggð frá 6. öld f. Kr. og er önnur fjölmennasta borg landsins með 16,3 milljónir íbúa.
Dagur 3 Nýja Delhi
Eftir morgunverð skoðunarferð um gömlu Delhi, múslímska hlutann. Jama Masjid stærsta moska Indlands sem byggð var 1644-1658, undir stjórn Shah Jahans fursta. Ekið framhjá Rauða virkinu við árbakka Yamuna ár, einnig byggt af þessum höfðingja mógúla á sama tímabili. Nýja Delhi, borgarhlutinn sem 1911 var skipaður höfuðborg Bretaveldis á Indlandi. Qutab Minar súlan frá 12. öld, 72 m og járnsúlan sem vel hefur staðist tímans tönn og ekki ryðgað á 1500 árum. Connaught Place í viðskiptahverfinu, Indlandsboginn, (India Gate) þar sem eilífur logi er til minningar um fallna hermenn Indlands, Rashtrapati Bhavan forsetahöllin, Lótushofið – áhugaverð blanda viktoríansks og 20. aldar arkítektúrs. Rauða virkið, Raj Ghat minnismerkið um hin merka Landsföður Indlands Mahatma Gandhi. Ef tími leyfir skoðum við Sikkahofið Gurudwara Bangla Sahib.
Dagur 4 Delhi – Agra (200 km, ~ 4 klst. akstur)
Ekið til borgarinnar Agra í Uttar Pradesh sýslu, sem er þekkt sem borg ástarinnar og er á heimsminjaskrá UNESCO. Fyrst er minnst á borgina í handritinu Mahābhārata, þar sem hún er kölluð Agrevaṇa (sem á sanskrít merkir „jaðar skógarins“). Agra virki sem byggt er við Yamuna á, með 20 m háum veggjum sem eru 2,5 km á lengd, í varnartilgangi eru síki umhverfis en á svæðinu bjó hefðarfólk þess tímabils. Skoðum Agra virkið þaðan sem glæsilegt útsýni er að Taj Mahal. Gist í Agra á hóteli.
Dagur 5 Agra - Fatehpur Sikri - Jaipur (250 km, ~ 6 klst. akstur)
Snemma að morgni við sólarupprás einn rómantískasti hluti ferðarinnar, þegar hið einstaka hof eilífrar ástar Taj Mahal er skoðað. Hvítt marmarahof risastórt byggt 1632, talið ein gersema byggingarlistar veraldarinnar (lokað föstudaga). Mógúllinn Shah Jahan lét byggja það til minningar um persneska eiginkonu sína, Mumtaz en það tók 20 þúsund handverksmenn 22 ár. Efniviðurinn var fluttur frá gervöllu Indlandi og byggingarmenn voru frá bæði Asíu og Evrópulöndum. Síðan morgunverður hóteli og leiðin til Jaipur, höfuðborgar Rajasthani fylkis sem þekkt er fyrir byggingar úr rauðum sandsteini og er því stundum kölluð bleika borgin. Á leiðinni komið við í Fatehpur Sikri „draugaborginni”, byggðri úr rauðum sandsteini til heiðurs hinum helga Salim Chisti, borgin var yfirgefin árið 1585 eftir einungis 14 ára búsetu vegna skorts á vatni. Þar má sjá hæstu dyr í Asíu, “Buland Darwaja”, þessir staðir eru á heimsminjaskrá menningarstofnunnar SÞ UNESCO.
Dagur 6 Jaipur
Eftir morgunverð ekið til hallar Jaipurveldisins á miðöldum - Amber virkis sem rís hátt yfir borginni, þar gefst kostur að fara á bak fílum, sem er hin merkilegasta lífreynsla. Síðan er skoðunarferð um borgina með menntastofnunum, fleiri merkisbyggingum og líflegum austrænum mörkuðum. Hawa Mahal „höll vindana" byggð 1799 úr rauðum sandsteini. Maharaja's City Palace - konungshöll sem enn er að hluta notuð sem slík af konungsfjölskyldunni af Jaipur. Einnig safn með dýrgripum og vopnum ættarinnar. Jantar Mantar Observatoría, þ.e. stjörnuskoðunarstöð, þar sem mörg tækja virka enn í dag. Smakkað er á réttum Rajasthani héraðs og gist í hinni merku Jaipur.
Dagur 7 Jaipur – Góa
Frjáls morgun til innkaupa, kaffihúsaferða o.þ.h. Útskráning af hóteli og flogið er til S-Indlands, nánar tiltekið til Góa. Innskráning á hótel á þessum þekkta strand-/sumaleyfisstað sem einkennist af portúgölskum áhrifum þar sem Góa tilheyrði þvi landi á nýlendutímum en Indverjar endurheimtu loks svæðið með hernaðaraðgerð 1961. Hér er skemmtileg blanda indversk-latínó (portúgalskra)-breskra menningaráhrifa en Góa var mjög vinsæll staður meðal hippa á 7. og 8. áratugunum.
Dagur 8 Góa
Í dag er engin skipulögð dagskrá, menn hafa frjálsan tíma til að skynja hið einstaka andrúmsloft í Góa sem er mjög frábrugðið því sem við höfum kynnst í N – hluta Indlands. Strendurnar eru rómaðar og þjónusta eins og hún gerist best.
Dagur 9 Góa
Eftir morgunverð er hægt að fara í dagsskoðunarferð um þetta merka svæði, m.a. gamla Góa þar sem kirkjur evrópskra trúarbragða eru í bland við hindúahof og trúarbyggingar heimamanna. Fiskmarkaðurinn skoðaður og líflegur austrænn markaður, hægt að skreppa á kaffihús, fá sér ís oþh.
Dagur 10 Góa
Góa er minnsta og ríkasta fylki Indlands og hér er öll þjónusta í hæsta gæðaflokki, m.a. úrval verslana. Engin skipulögð dagskrá, frjáls tími, tilvalið að gera seinustu innkaupin í þessari Indlandsferð á litríkum mörkuðum Góa eða frjáls tími með áframhaldandi strand- og næturlífi sem Góa er þekkt fyrir .
Dagur 11-13 Góa
Frjáls tími og áframhaldandi afþreying í paradísinni Góa.
Dagur 14 Goa - Keflavík
Ferðalok, farið með innanlandsflugi til Delhi og þaðan London, síðan áfram til Íslands. Lending í Keflavík síðdegis að staðartíma.
VERÐ:
TVÍBÝLÍ 359 000 kr
EINBÝLÍ 447 000 kr
Nokkurnveginn allt innifalið!
Innifalið í verði:
-
Gisting með morgunmat öllum hótelum
-
Hádegis- eða kvöldverðir (HB - Half Board)
-
Flug og flugvallarskattar
-
Innanlandsflug á Indlandi + skattar
-
Loftkæld rúta
-
Aðgangur að tilgreindum söfnum
-
Farið á bak á fílum í Jaipur
-
Hestvangi ekið í Agra
-
Drykkjarvatn í rútum
-
Íslensk fararstjórn
-
Enskumælandi hópstjóri, staðarleiðsögumaður á Indlandi.
Ekki innifalið:
-
Þjórfé á hótelum, einnig til leiðsögumanna og bílstjóra
-
Allur aukakostnaður á hótelum, áfengir drykkir
-
Ljósmynda- og hreyfimyndagjald þar sem þess er krafist.